Lífið

Frægðin hefur styrkt sambandið

Kalli Bjarni og Alla kona hans eru í helgarviðtali í DV sem komið er á alla blaðsölustaði. Í viðtalinu ræða þau um frægðina og hvernig samband þeirra hefur styrkt á þessu tæpa ári sem liðið er síðan Kalli vann keppnina. Alla segist treysta Kalla fullkomlega og þau reyna að gera eins mikið og þau geta saman. Alla segir Kalla að vísu ekki vera nógu duglegan í húsverkunum, en hann hjálpi henni í aukavinnunni í staðinn; við beitningar. 

"Allt hefur þetta haft mikil áhrif á líf okkar og alls ekki neikvæð. Þvert á móti jákvæð," segir Alla feimnislega í viðtalinu í DV og bætir við að þau hafi aldrei verið eins samrýmd og líði betur saman en nokkur sinni fyrr. Hann kinkar kolli og segir: 

"Já, samband okkar hefur styrkst mjög á þessu ári. Ekki það að okkur hafi ekki liðið vel áður en samt... Við höfum verið mikið saman og kynnst upp á nýtt við nýjar aðstæður. Það hefur gert okkur gott," segir hann og lítur á konu sína. 

Ítarlegt viðtal við þau skötuhjúin er að finna í helgarblaði DV þar sem meðal annars kemur fram að þau ætla að ganga í hjónaband innan tíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×