Sport

Phoenix Suns á góðu skriði

Phoenix Suns er á mikilli siglingu í NBA-körfuboltanum um þessar mundir. Liðið hefur unnið 9 af síðustu 10 leikjum sínum og burstaði Portland Trail Blazers í fyrrinótt, 121-99. Þar fór Quentin Richardson hamförum og skoraði 37 stig í leiknum. Suns er efst í Kyrrahafsriðlinum og hefur aðeins tapað þremur leikjum af 17.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×