Sport

Naumur sigur Stúdína í 1. deild

Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld þar sem ÍS sigraði Njarðvík í sveiflukenndum leik, 56-52. Eftir að hafa verið 40:21 undir í hálfleik náðu Njarðvíkurstúlkur að komast yfir, 46:48 eftir þriðja leikhluta en Stúdínur sneru dæminu við og náðu að sigla yfir í lokin og tylltu sér það með í 2. sæti deildarinnar. Njarðvík er sem fyrr í fimmta og næst neðsta sæti með 4 stig. Keflavík er efst með 16 stig eftir 8 leiki en ÍS kemur þar á eftir með 12 stig eftir 9 leiki.Grindavík er með jafnmörg stig í 3. sæti en á leik til góða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×