Sport

Kidd með góðan leik

Jason Kidd lék fyrsta leik sinn á tímabilinu með New Jersey Nets eftir meiðsli og átti stóran þátt í sigri liðsins gegn Toronto Raptors 88-86. Richard Jefferson skoraði sigurkörfuna sjö sekúndum fyrir leikslok eftir sendingu Kidds. Kidd skoraði 10 stig, tók sex fráköst og átti þrjár stoðsendingar en hann lék í 21 mínútu. Allen Iverson skoraði 36 stig fyrir Philadelphia en það dugði ekki til gegn Atlanta sem vann 96-92. Detroit Pistons bar sigurorð af Dallas 101-85. San Antonio Spurs skellti Chicago 91-75. Dwyane Wade skoraði 23 stig og Shaquille O´Neal 21 og tók 13 fráköst fyrir Miami þegar lagði Utah að velli 100-80. Shaq tók 10 þúsundasta frákast sitt í NBA deildinni í leiknum. Denver skellti Orlando 115-102, Golden State Warriors marði sigur á Boston 110-106 og loks vann Los Angeles Clippers Charlotte Bobcats 99-93 eftir tvíframlengdan leik.  San



Fleiri fréttir

Sjá meira


×