Sport

Jason Kidd með á ný

Jason Kidd lék sinn fyrsta leik með New Jersey Nets í NBA-körfuboltanum í fyrrakvöld, þegar liðið mætti Toronto Raptors, en Kidd missti af fyrstu 18 leikjum tímabilsins vegna hnémeiðsla. Kidd virkaði ryðgaður eftir fjarveruna en átti þó stoðsendingu á Richard Jefferson undir lokin sem tryggði Nets sigur, 88-86. "Hann er besti leikstjórnandi heims og með þannig mann innanborðs munum við fá opin skot. Við erum á uppleið," sagði Alonzo Mourning.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×