Sport

Fyrrum leikmaður Rockets sýknaður

Calvin Murphy, fyrrum leikmaður Houston Rockets í NBA-körfuboltanum, var sýknaður af ákæru fimm dætra sinna um að hafa misnotað þær kynferðislega. Murphy, sem á fjórtán börn með níu konum, var létt við úrskurð kviðdómsins. "Hjartað mitt stækkaði og sló ört þegar dómurinn var tilkynntur. Ég er tilfinningaríkur maður og ætla að njóta þessarar stundar," sagði Murphy. Saksóknari málsins var æfur yfir niðurstöðunni og kallaði Murphy stórfelldan lygara og benti á það að hann hefði leynt því í 20 ár fyrir konu sinni og fjölskyldu að hann ætti fjórar aðrar fjölskyldur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×