Sport

10 menn kærðir fyrir NBA-slagsmál

Fimm leikmenn Indiana Pacers og fimm áhangendur Detroit Pistons verða sóttir til saka fyrir slagsmál á leik liðanna tveggja sem fram fór 19. nóvember síðastliðinn. Jermaine O Neal fékk á sig tvær ákærur meðan að Ron Artest, David Harrison, Stephen Jackson og Anthony Johnson eru allir ákærðir fyrir líkamsárás. Þá er John Green ákærður fyrir að henda glasi í Artest og Bryant Jackson fyrir að henda stóli í hóp fólks. Brot Jacksons gæti kostað hann allt að fjögurra ára fangelsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×