Sport

Chicago vann loks leik

Chicago Bulls unnu loks leik í NBA-körfuboltanum í gær. Þetta gamla stórveldi lagði Cleveland 113-85. Los Angeles Lakers töpuðu fyrir Phoenix Suns 113-110 þrátt fyrir 20 stig frá Kobe Bryant, 14 fráköst og 11 stoðsendingar. Tröllið Shaquille O´Neal skoraði 18 stig fyrir Miami Heat sem sigraði Milwaukee Bucks 101-96. Detrot sigraði Toronto 90-86 og Andre Miller skoraði 34 stig fyrir Washington sem sigraði Denver 111-105.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×