Sport

Ronaldhino fer ekki til Chelsea

Ronaldhino, nýkrýndur knattspyrnumaður árins 2004, segist hafa engin áform um að segja skilið við Barcelona til að ganga til liðs við Chelsea. "Ég sagðist aldrei vilja spila með Chelsea. Ég er hamingjusamur þar sem ég er og mig langar að halda áfram þar sem ég er í dag," sagði Ronaldhino. Brasilíumaðurinn knái sagði að félagið hefði gefið sér meira en hann því og að hann hefði fullan hug á að vera þátttakandi í félaginu sem sannur sigurvegari. "Hins vegar finnst mér Chelsea vera að gera frábæra hluti og ég gæti alveg hugsað mér að búa í London á einhverjum tímapunkti."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×