Innlent

KB stefnir Mjólkurfélaginu

KB banki hefur stefnt Mjólkurfélagi Reykjavíkur til að greiða hálfan milljarð króna vegna samnings sem fyrrverandi stjórnarformaður félagsins gerði við bankann vegna viðskipta með Fóðurblönduna. Mjólkurfélagið segir samninginn ólögmætan. Kristinn Gylfi Jónsson, fyrrum aðaleigandi Móa og fleiri fyrirtækja, var um árabil stjórnarformaður Mjólkurfélags Reykjavíkur. Hann fékk Búnaðarbankann til að kaupa Fóðurblönduna á sínum tíma í því skyni að ráðandi hlutur yrði seldur Mjólkurfélaginu aftur. Um þetta var gerður samningur í maí 2001 þar sem stjórnarformaðurinn ábyrgðist fyrir hönd Mjólkurfélagsins að bankinn biði ekki fjárhagslegan skaða af viðskiptunum. Stjórnin heldur því nú fram að sá samningur hafi verið ólögmætur þar sem hann hafi ekki verið borinn undir stjórn félagsins. Samkeppnisstofnun féllst ekki á að Mjólkurfélagið gæti eignast Fóðurblönduna og náð þannig einokunarstöðu á fóðurmarkaði. Bankinn sat uppi með Fóðurblönduna þar til hann seldi hana aftur með tapi. Mjólkurfélagið hefur nú fengið reikninginn frá KB banka, tæpar 500 milljónir með áföllnum vöxtum, en stefnan barst félaginu rétt fyrir jól. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Eigið fé Mjólkurfélagsins er ekki nema um tvö hundruð milljónir í dag, enda hefur gjaldþrot þriggja fyrirtækja Kristins Gylfa, Móa, Brautarholts og Nesbús, dregið máttinn úr félaginu en félagið afskrifaði 320 milljónir vegna þeirra. Kristinn Gylfi fékk Búnaðarbankann einnig til að kaupa kjúklingaframleiðandann Reykjagarð en það hugðist Kristinn Gylfi sameina rekstri Móa ef Samkeppnisstofnun leggði blessun sína yfir samrunann. Það gerði Samkeppnisstofnun hins vegar ekki. KB banki áskilur sér nú einnig réttar til að krefjast bóta vegna þeirra viðskipta.  Mjólkurfélagið er sameignarfélag tæplega 400 bænda og hefur verið við lýði frá árinu 1917. Það flytur inn fóður og ýmislegt annað til landbúnaðar. Margir bændur líta á stofnfé sitt í félaginu sem lífeyrissparnað, enda var félaginu breytt í hlutafélag í fyrra. Aðalfundur Mjólkurfélagsins fól lögfræðingi sínum í sumar að kanna hvort ástæða væri til að vísa málum sem varða viðskipti Kristins Gylfa við félagið til lögreglu.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×