Sport

Þýskt dómarahneyksli viðurkennt

Þýska knattspyrnusambandið greindi frá því í fyrradag að dómarinn Robert Hoyzer hafi sagt starfi sínu lausu eftir að hafa viðurkennt fyrir stjórn sambandsins að hann hafi hagrætt úrslitum í leik milli Hamburg SV og Paderborn í fyrstu umferð þýsku bikarkeppninnar sem fram fór 21. ágúst sl. Hoyzer veðjaði sjálfur á leikinn og gaf Paderborn tvær vítaspyrnur í leiknum sem varð til þess að liðið vann, 4-2. Málið er í rannsókn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×