Innlent

Ákvörðun Sýslumanns felld úr gildi

Hæstiréttur felldi í gær úr gildi ákvörðun Sýslumannsins á Seyðisfirði um að Síldarvinnslunni í Neskaupstað bæri að greiða stimpilgjald vegna samruna Síldarvinnslunnar og SR-mjöls. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.  Í kjölfar samruna fyrirtækjanna, sem tók gildi 1. janúar 2003, ákvað Sýslumaðurinn á Seyðisfirði að innheimta stimpilgjald af gögnum þegar gerð var nafnabreyting á eignum sem áður tilheyrðu SR-mjöli og þær færðar yfir á nafn Síldarvinnslunnar. Túlkun Sýslumanns var á þá leið að nafnabreytingin jafngilti því að um væri að ræða framsal á fasteignum SR-mjöls yfir til Síldarvinnslunnar og því bæri að innheimta stimpilgjald sem næmi eignarhlut Síldarvinnslunnar í hinu sameinaða félagi. Þessu mótmæltu forsvarsmenn Síldarvinnslunnar og kærðu ákvörðun sýslumannsins á Seyðisfirði til fjármálaráðuneytisins á þeim forsendum að ekki væri um að ræða framsal á fasteignum, heldur hefði þarna átt sér stað samruni fyrirtækjanna. Hluthafar SR-mjöls hafi ekki afsalað eignum félagsins til Síldarvinnslunnar og því hafi verið um að ræða samruna, ekki sölu, enda hafi hluthafar SR-mjöls ekki fengið peninga fyrir hlutabréf sín heldur eignast hlutabréf í hinu sameinaða félagi. SR-mjöl hafi runnið inn í Síldarvinnsluna og sé því enn eigandi fasteignanna ásamt öðru. Við samruna félaganna hafi engin skattskyld eða stimpilskyld viðskipti átt sér stað og engin yfirfærsla eignarréttinda, heldur í raun breyting á nafni eiganda. Úrskurður fjármálaráðuneytisins var á þá leið að ákvörðun sýslumannsins á Seyðisfirði um greiðslu stimpilgjalds skyldi standa. Þá var málinu vísað til Héraðsdóms sem dæmdi á þá leið að úrskurður fjármálaráðuneytisins skyldi felldur úr gildi. Þessu undi ríkislögmaður ekki og áfrýjaði málinu til Hæstaréttar sem, eins og fyrr segir, dæmdi Síldarvinnslunni í vil. Jónas A. Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, sem sótti málið fyrir hönd Síldarvinnslunnar, segir að hér sé um ákaflega merkilegan dóm að ræða. Dómurinn segi að skattlagning stimpilgjalds, á samruna á þennan hátt, eigi ekki rétt á sér samkvæmt stimpillögum. Dómurinn sé fordæmisgefandi fyrir allan samruna og brjóti í raun blað hvað þetta verðar. „Ég lýsi ánægju minni með þessa niðurstöðu Hæstaréttar,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, „og tel að niðurstaðan geti skipt miklu máli fyrir atvinnulífið í landinu.“


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×