Sport

Elber á leið frá Lyon

Knattspyrnumaðurinn Giovanni Elber hefur fengið sig lausan undan samningi frá franska liðinu Lyon, eftir að sló í brýnu milli hans og forráðamanna liðsins. Elber hefur verið lengi frá vegna meiðsla, en hann ökklabrotnaði fyrir nokkru síðan og komu upp deilur milli hans og liðsins þegar hann hunsaði reglur og fór sínar eigin leiðir varðandi endurhæfingu sína. Samningi leikmannsins hefur verið rift og er hann nú laus frá félaginu og ljóst að mörg lið hugsa sér gott til glóðarinnar að hreppa þennan 32 ára framherja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×