Sport

Bayern eykur forskotið

Bayern Munchen jók í dag forskot sitt toppi þýsku Bundesligunnar í knattspyrnu í þrjú stig. Bayern bar sigurorð af Leverkusen, 2-0, með mörkum frá Roy Makaay og Paulo Guerrero á meðan helstu keppinautar þeirra, Schalke, gerðu 2-2 jafntefli gegn Hansa Rostock. Schalke voru í raun heppnir að ná jafntefli því Ailton jafnaði á 90. mínútu. Úrslit í leikjum dagsinsBayern Munchen - Leverkusen 2-0 Makaay 45 (víti), Guerrero 68 Hansa Rostock - Schalke 04 2-2 Prica 65, Arvidsson 73 - Sand 25, Ailton 90 Hannover 96 - Dortmund 1-3 Krupnikovic 73 (víti) - Koller 6, Ricken 30,50 Mainz - Hertha Berlin 0-3 Basturk 27,73 Neuendorf 68 Nurnberg - Hamburg 1-3 Vittek 82 - Takahara 30,53, Lauth 90 Stuttgart - Kaiserslautern 1-1 Kuranyi 14 - Engelhardt 60 Bochum - Bielefeld 1-1 Madsen 19 (víti) - Buckley 29



Fleiri fréttir

Sjá meira


×