Sport

Bayern í úrslit bikarkeppninnar

Bayern München sigraði Armenia Bielefeld 2-0 í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í gærkvöldi og mætir Schalke í úrslitum 28. maí. Bayern München hefur ellefu sinnum orðið þýskur bikarmeistari, oftar en nokkurt annað félag. Schalke hefur fjórum sinnum sigrað en ekkert lið hefur oftar tapað í bikarúrslitum því Schalke-menn hafa sex sinnum orðið að láta í minni pokann í þýsku bikarkeppninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×