Sport

Detroit - Philadelphia

Allen Iverson og félagar í Philadelphia 76ers eru ekki öfundsverðir af því að mæta sjálfum NBA meisturum Detroit Pistons í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Ekki bætir úr skák fyrir 76ers, að meistararnir hafa verið á gríðarlegri siglingu í síðustu tíu leikjunum á tímabilinu og þó fæstir hafi tekið eftir því, eru Pistons með eitt allra besta vinningshlutfallið í deildinni eftir áramótin. Það er ekki ósvipuð þróun og var hjá liðinu í fyrra, þegar þeir flestum að óvörum fóru alla leið og sigruðu Lakers í úrslitunum. Detroit liðið er ákaflega vel skipað og varla veikan hlekk að finna. Þeir eru með hávaxið, skipulagt og vel þjálfað lið, sem hugsar fyrst og fremst um varnarleikinn, sem er einmitt formúlan að meistaraliði í NBA. Eitt er víst, það lið sem ætlar sér einhverja hluti í úrsiltakeppninni í Austurdeildinni, verður að fara í gegn um meistarana sjálfa. Lið Philadelphia aftur á móti stendur og fellur með Allen Iverson, sem margir vilja meina að sé besti leikmaður deildarinnar í ár. Hann hefur skorað meira en nokkur annar leikmaður í vetur og er hjartað og sálin í liðinu. Ef Philadelphia á að eiga fræðilegan möguleika gegn meisturunum í þessari rimmu, verður Allen Iverson að eiga hvern stórleikinn á fætur öðrum, eins og hann hefur reyndar gert á síðari helmingi tímabilsins. Menn eins og Chris Webber og Kyle Korver verða líka að stíga fram fyrir skjöldu og hjálpa til við stigaskorun. Fyrsti leikur liðanna er á laugardagskvöld í Detroit og hefst útsending frá leiknum  á Sýn kl. 21:50.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×