Sport

Jefferson farinn að æfa með Nets

Framherjinn Richard Jefferson hjá New Jersey Nets, sem verið hefur frá keppni síðan fyrir áramót vegna meiðsla, er mætti á sína fyrstu æfingu hjá liðinu í gær og stefnir á að vera með í úrslitakeppninni. Jefferson meiddist illa á hendi í leik með Nets milli um jólin, en það var einmitt fyrsti leikur Vince Carter fyrir liðið eftir að hann kom frá Toronto og því hafa þeir félagar ekkert leikið saman með liðinu. Jefferson mætti á sína fyrstu æfingu í gær og sagðist mjög ryðgaður. "Þetta var eins og að leika fyrsta leik í æfingabúðum að hausti. Það var virkilega skrítið að koma inn á völlinn aftur. Ég mun nú ekki spila mikið þó ég verði með og kannski bara einhverjar fimm mínútur í leik, en við verðum að sjá hvernig ég næ mér á strik og ef þjálfarinn vill að ég leiki 20 mínútur, mun ég reyna að gefa honum 20 mínútur," sagði Jefferson.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×