Sport

Sigur hjá Kára og Djurgården

Djurgården vann Gefle 3-1 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær, en Kári Árnason lék með Djugården. Hjálmar Jónsson var í liði Gautaborgar sem gerði markalaust jafntefli við Kalmar og Pétur Hafliði Marteinsson var í liði Hammarby sem tapaði á útivelli fyrir Helsingborg, 2-1. Helsingborg í efsta sæti í sænsku úrvalsdeildinni með 12 stig, Kalmar í öðru sæti með 11 og síðan koma Malmö og Djurgården með 10 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×