Sport

Owen ráðleggur Liverpool

Enski landsliðsmaðurinn Michael Owen hjá Real Madrid, sem áður lék með Liverpool, hefur hvatt sína gömlu félaga sína til að einbeita sér að því að reyna að vinna meistaradeildina í stað þess að vera að þrátta um þáttökurétt sinn á næsta ári. "Það sem Liverpool þarf að gera er að nota allan sinn kraft í að vinna úrslitaleikinn. Ef þeir vinna ekki keppnina, þá verður auðvitað bara að hafa það. Færi hinsvegar svo að þeir vinni úrslitaleikinn, má fastlega gera ráð fyrir því að enska knattspyrnusambandið fari á fullu í að keyra málstað þeirra í gegn. Það verður nægur tími til að fást um það eftir leikinn. Mér finndist sjálfum óeðlilegt að sjá meisturnunum ekki leyft að verja titil sinn," sagði Owen.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×