Sport

Terry farinn í sumarfrí

Fyrirliði Chelsea, John Terry, er farinn í snemmbúið sumarfrí og mun eyða megninu af því við að jafna sig eftir aðgerð. Terry er meiddur á tá og mun gangast undir aðgerð á henni nú í vikunni. Hann mun því fyrir vikið ekki aðeins missa af síðustu 2 leikjum Chelsea í deildinni gegn Man Utd og Newcastle heldur einnig æfingaferð liðsins til Kóreu síðar í mánuðinum sem og ferð enska landsliðsins til Bandaríkjanna í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×