Sport

Kvikmynd væntanleg um Real Madrid

Spænska knattspyrnustórveldið Real Madrid gefur á næstu dögum út fyrstu kvikmyndina í fullri lengd um félagið. Myndin sem ber titilinn "Real, The Movie" verður kynnt í nokkrum löndum í sumar á ferðalagi liðsins um heiminn. Myndin skiptist bæði í leikna og raunverulega kafla úr herbúðum liðsins og var tekin upp víða um heiminn á stöðum eins og New York, Tokyo, Senegal og Madrid. Í fréttatilkynningu frá Real Madrid í dag segir að í myndinni fái áhorfendur að sjá einstakar upptökur á bak við tjöldin, ferðalög liðsins um heiminn, hæðir og lægðir leikmanna og frá æfingum svo eitthvað sé að nefna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×