Sport

Veigar skoraði fernu í bikarnum

Veigar Páll Gunnarsson skoraði fernu fyrir Stabæk í norska bikarnum í kvöld en Stabæk-liðið vann þá 7-0 sigur á Fossum í 1. umferð norsku bikarkeppninnar. Veigar Páll skoraði mörkin á 11., 27., 40. og 55. mínútu leiksins.Haraldur Freyr Guðmundsson var einnig á markaskónum með Álasund sem vann Hareid 4-0. Engin óvænt úrslit voru í þessarri fyrstu umferð.Haraldur Freyr Guðmundsson skoraði eitt mark fyrir Álasund, sem vann Hareid 4-0. Markið skoraði Haraldur strax á 6. mínútu leiksins og kom liði sínu á bragðið en hann spilaði allan leikinn í vörn Álasund.Engin óvænt úrslit voru í þessarri fyrstu umferð og öll lið úrvalsdeildarinnar komust klakklaust áfram í 2. umferð. Rosenborg, fyrrverandi lið Árna Gauts Arasonar, vann stórsigur á Orkla 11-0 og Vålerenga, núverandi lið Árna Gauts, vann öruggan sigur á Hadeland 10-2. Árni Gautur var í markinu allan tímanna og fékk mörkin á sig á 29. og 48. mínútu leiksins. Hannes Sigurðsson spilaði síðan allan leikinn með Viking sem vann 2-1 sigur á Vaulen á útivelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×