Sport

Arsenal 7 - Everton 0

Arsenal fór hamförum og gjörsamlega niðurlægði Meistaradeildarnýliðana í Everton með 7-0 sigri í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þar sem Dennis Bergkamp fór á kostum, lagði upp nokkur markanna og skoraði eitt.  Staðan í hálfleik var 3-0. Robert Pires skoraði tvö mörk fyrir Arsenal eins og Matthew Flamini en Patrick Vieira, Edu, Bergkamp og Sol Campbell gerðu eitt mark hvor. Leikurinn í kvöld skipti engu máli fyrir liðin hvað varðar stöðuna í deildinni en úrslitin bera þess merki að leikmenn Everton séu ennþá að halda upp á að hafa náð Meistaradeildarsætinu og séu hreinlega með timburmenni. Arsenal er öruggt með 2. sæti deildarinnar og eru með 83 stig en Everton öruggt með 4. sæti þar sem þeir sitja með 61 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×