Sport

Galatasaray bikarmeistari

Galatasaray tryggði sér í kvöld tyrkneska bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu eftir stórsigur á nágrönnum sínum í Fenerbahce, 5-1. Leikurinn fór fram Ólympíuleikvanginum í Aþenu sem mun hýsa úrslitaleik Meistaradeildarinnar milli AC Milan og Liverpool en hann tekur 80.000 manns í sæti. Aðeins 18.000 áhorfendur treystu sér þó á völlinn í Aþenu í kvöld þar sem ofbeldi áhorfenda á pöllunum í landinu hefur farið vaxandi undanfarið. 8.000 lögreglumenn voru á vakt á leiknum og fjöldi eftirlitsmanna frá UEFA en mikið er lagt upp úr því að allt fari vel fram þegar úrslitaleikur Meistaradeildarinnar fer fram 25. maí n.k.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×