Sport

Henry vill Bergkamp áfram

Thierry Henry hefur sagt að hann vilji að Arsene Wenger hætti öllum vangaveltum um framtíð Hollendingsins Dennis Bergkamp og semji við hann til eins árs. Í 7-0 leiknum gegn Everton á Highbury um helgina mátti heyra stuðningsmenn Arsenal kalla ,,eitt ár til viðbótar" og voru þar að miðla til Wenger og stjórnar Arsenal að semja við Bergkamp. Bergkamp, sem er ný orðinn 36 ára hefur greinilega ennþá þessa töfra í löppunum. ,,Ég var mjög ánægður fyrir hönd Dennis," sagði Henry. ,,Á meðan á leiknum stóð heyrði maður stuðningsmennina vera að biðja um eitt ár enn fyrir hann. Mér finnst það vera það minnsta sem maður getur gert fyrir leikmann eins og hann." ...og Henry hélt áfram: ,,Ég hef margoft sagt það, hann gerir hlutina auðveldari á vellinum. Þið sáuð hvað hann var arkitekt að mörgum mörkum í Everton leiknum. Ég missti töluna." 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×