Sport

Beckham meiddur

David Beckham meiddist á æfingu og gæti misst af leik Real Madrid gegn Sevilla á laugardaginn. Hinn þrítugi enski landsliðsfyrirliði, sem hefur verið í fínu formi að undanförnu, gat ekki æft í dag né í gær. Wanderley Luxemburgo, stjóri Real Madrid, mun þó bíða þar til á síðustu stundu með að ákveða hvort Beckham spili gegn Sevilla. Ef ekki er líklegt að Jose Maria Gutierrez, en ekki Luis Figo, taki sæti hans í liðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×