Sport

Smicer aftur til Lens?

Vladimir Smicer, leikmaður Liverpool, segist vera að íhuga flutnig aftur til franska liðsins Lens, en Smicer mun nær örugglega yfirgefa Liverpool í sumar þegar samningur hans rennur út. Þó Smicer hafi ekki viljað staðfesta að hann væri á leið til Lens, þá sagði hann að hann væri ekki á leið til heimalandsins Tékklands. ,,Það er ennþá of snemmt til að taka ákvörðun, en ég er að íhuga tilboðið frá Lens. Sem stendur liggur mér ekkert á að fara aftur til Tékklands."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×