Sport

Baros þögull um Everton

Milan Baros, sóknarmaður Liverpool, vildi í dag ekki tjá sig um þann orðróm að hann muni færa sig um set í Liverpool borg í sumar og skrifa undir hjá Everton. Tékkneski landsliðsframherjinn mun líklega yfirgefa Liverpool í sumar og verður nú æ háværari sá orðrómur að Everton sé hans næsti áfangastaður. Hins vegar, þegar hann var spurður um málið, vildi Baros lítið ræða málið þá hann viðurkenndi að ef hann myndi yfirgefa Liverpool myndi hann vilja fara til liðs í Meistaradeildinni. ,,Ég vil ekki ræða þetta, orðrómar eru til einskyns," sagið Baros. ,,Þessari spurningu verður svarað í sumar. Þá mun umboðsmaður minn fara í málið." ...og Baros hélt áfram: ,,Ég hef aldrei sagt að ég muni yfirgefa Liverpool. Ég hef fengið nokkur tilboð, en þetta er í verkahring Pavel Paska, umboðsmanns míns. Ef ég fer frá Liverpool vil ég spila með liði sem er á sama stalli og Liverpool í Evrópu, í það minnsta, og ég vil spila þar reglulega."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×