Sport

Sevilla á eftir Luis Fabiano

Spænska liðið Sevilla eru komnir í kapphlaupið um brasilíska framherjann Luis Fabiano hjá Porto ef marka má fréttir frá Portúgal. Corinthians og Palmeiras eru einnig sögð hafa áhuga á hinum 24-ára gamla Fabiano sem hefur ekki átt fast sæti í liði Porto á þessari leiktíð. Þau eru þó ekki sögð tilbúin að borga þriggja milljón evra verðmiðann sem er á leikmanninum ásamt trega hans við að snúa heim á leið. En Sevilla er með ákveðið tromp á hendi í formi Julio Baptista, samherji Fabiano með brasilíska landsliðinu sem sigraði Copa America árið 2004.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×