Sport

"Zidane sá besti" segir Pele

Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pele segir að franski landsliðsmaðurinn Zinedine Zidane sé besti knattspyrnumaður síðasta áratugar. Pele sem nú er 64 ára er staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi þar sem hann er að kynna nýja heimildarmynd um feril sinn sem besti knattspyrnumaður sögunnar. Hann talaði við fjölmiðlamenn í dag þriðjudag og taldi upp nokkra af sínum eftirlætis knattspyrnumönnum síðasta áratugar. "Figo, Raul, Beckham, Ronaldo eða Kaka eru mjög góðir leikmenn, en Zidane hefur leikið mun stöðugari leik en aðrir." sagði Pele. Heimildamyndin ber titilinn "Pele Forever", er gerð af Anibal Massaini Neto og er til sýningar á bíótjöldum við ströndina á frönsku rívíerunni ef þú skylduð eiga leið fram hjá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×