Sport

Leikið til úrslita í UEFA-bikarnum

Úrslitaleikur Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu fer fram í dag. Portúgalska liðið Sporting mætir Rússneska liðinu CSKA frá Moskvu og verður leikurinn háður á heimavelli Sporting í Lissabon. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn en hann hefst klukkan 18.45. Á sama tíma keppa Ipswich og West Ham í umspili um sæti í úrvalsdeild. Þetta er seinni leikur liðanna en fyrri leiknum lauk með jafntefli, 2-2. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn 2 og endursýndur á Sýn strax eftir leik Sporting og CSKA Moskvu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×