Sport

Drogba með heimþrá

Didier Drogba, sóknarmaður Englandsmeistara Chelsea, segist í samtali við franska blaðið L´Equipe ekki útiloka að fara aftur til Marseille. Drogba segir að hann hafi átt erfitt með að laga sig að lífinu í Lundúnum og að hann sé með heimþrá. Drogba segir að leikstíll Chelsea henti sér ekki en fer lofssamlegum orðum um knattspyrnustjórann, Jose Mourinho. Ensk dagblöð segja frá því í dag að Chelsea vilji krækja í Kamerúnann Samuel Eto´o hjá Barcelona. Hann er metinn á 30 milljónir punda, eða 3,6 milljarða króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×