Sport

Ambrosini ekki með í Istanbul?

Miðjumaðurinn hjá AC Milan, Massimo Ambrosini, mun líklega missa af úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Liverpool í Istanbul þann 25. maí vegna meiðsla. Hinn 27-ára gamli ítalski landsliðsmaður, sem hefði líklega ekki komist í byrjunarliðið hvort eð er, meiddist í 2-2 jafnteflisleiknum gegn Lecce um helgina. Ambrosini hefur ekki átt fast sæti í liði Milan í vetur, en hann skoraði þó markið mikilvæga gegn PSV Eindhoven í seinni leik liðanna í undanúrslitum og kom Milan í úrslitaleikinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×