Sport

Reyes líklega með í úrslitaleiknum

Arsenal fengu í dag góðar fréttir er í ljós kom að framherjinn Jose Antonio Reyes muni líklega vera leikfær fyrir úrslitaleik ensku bikarkeppninnar gegn Manchester United. Framherjinn spænski var ekki talinn líklegur til að spila leikinn vegna meiðsla sem hann hlaut gegn Birmingham. Þetta eru að sjálfsögðu frábærar fréttir fyrir Arsene Wenger stjóra Arsenal en hann mun ekki geta teflt fram franska snillingnum Thierry Henry sem er meiddur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×