Sport

Sporting yfir í hálfleik

Sporting frá Lissabon er yfir í leikhléi gegn CSKA Moskvu í úrslitaleik liðanna í Uefa keppninni. Það var Brasilíumaðurinn Fidelis Rogerio sem gerði markið á 28. mínútu með frábæru skoti utan teigs. Sporting hefur verið mun betra liðið en Rússarnir hafa legið til baka og reynt að loka öllum svæðum og beita skyndisóknum. Silva Vagner Love fékk þó dauðafæri fyrir CSKA en á óskyljanlegan hátt hitti hann ekki markið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×