Sport

Hamann aftur í landsliðið

Dietmar Hamann, þýska miðjustálið hjá Liverpool, var í dag kallaður á ný í þýska landsliðshópinn. Hamann hefur ekki leikið landsleik síðan á EM 2004 en frammistaða hans að undanförnu með Liverpool hefur sannfært Jurgen Klinsmann í að velja hann í landsliðið á nýju. Þýskaland spilar í riðli með Ástralíu, Túnis og Argentínu á móti sem fram fer 15.-29. júní næstkomandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×