Sport

Vagner Love skorar 3. markið

CSKA er komið í 3-1 gegn Sporting frá Lissabon í úrslitaleik Uefa keppninnar. Vagner Love skoraði markið eftir góða sendingu frá vinstri. Leikmenn sporting voru þó ótrúlega óheppnir að jafna ekki leikinn nokkrum sekúndum áður. Rodrigo Tello átti þá fasta sendingu fyrir markið sem fór í leikmann Sportin sem stóð um einn metra fyrir framan opið markið, þaðan í stöngina og rúllaði eftir marklínunni og í hendur Igor Akinfeev markvarðar. Hann kastaði boltanum út og uppúr því skoraði Vagner Love marið. Nú eru eftir rúmar 10 mínútur af leiknum og ætli Portúgalarnir sér að vinna leikinn verða þeir að fara girða sig í brók.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×