Sport

West Ham í úrslit

West Ham tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik umspilsins um sæti í ensku úrvaldsdeildinni að ári er liðið sigraði Ipswich 0-2 á Portman Road. Fyrri leikurinn endaði með jafntefli 2-2. Það var Bobby Zamora sem gerði bæði mörk West Ham á tíu mínútna kafla um miðjan síðari hálfleik. West Ham mætir annað hvort Preston NE eða Derby County í úrslitaleiknum þann 30. maí á Þúsaldarvellinum í Cardiff.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×