Sport

Ásthildur með gegn Skotum

Ásthildur Helgadóttir leikur með íslenska landsliðinu í vináttuleik gegn Skotum í Perth í næstu viku. Ásthildur meiddist í mars í fyrra þegar Íslendingar mættu Skotum í Egilshöllinni og hefur ekki spilað með liðinu síðan. Jörundur Áki Sveinsson landsliðsþjálfari er búinn að velja 16 leikmenn sem halda til Skotlands. Sjö leikmenn koma frá Íslandsmeisturum Vals, þrír frá Breiðabliki, einn frá KR og ÍBV auk fjögurra leikmanna sem spila með erlendum liðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×