Sport

Koller orðrómnum neitað

Umboðsmaður Jan Koller, Tékkans stóra hjá Borussia Dortmund, hefur neitað þeim orðrómi að skjólstæðingur hans sé á leið í ensku úrvaldsdeildina og eru þá Sunderland eða WBA helst nefnd. Talið var að nýliðarnir í Sunderland og WBA hefðu verið í sambandi við Dortmund um Koller. Dortmund er í fjárhagskreppu og eru skuldir þeirra taldar vera um 135 milljónir evra. Af þeirri ástæðu, öðrum fremur, eru forráðamenn Dortmund tilbúnir að hlusta á tilboð í stærstu leikmenn sína. Pavel Paska, umbooðsmaður Koller, hefur nú neitað þessu. ,,Þessar sögur koma mér á óvart og ég held að einhver sé bara að skálda þetta. Jan Koller er frábær framherji, og með fullri virðingu fyrir þessum liðum, þá held ég að hann hafi ekki áhuga á þeim. Hann á ár eftir af samningi sínum við Dortmund og þá gæti hann farið frá þeim á frjálsri sölu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×