Sport

Etoo ekki til sölu

Forseti Barcelona, Joan Laporta, sagði í dag að hann myndi aldrei selja Samuel Etoo þrátt fyrir orðróm um áhuga Chelsea. Etoo varð á dögunum spænskur meistari með Barcelona og er sem stendur markahæsti leikmaðurinn í spænsku fyrstu deildinni. Það hefur verið þrálátur orðrómur þess efnis að Chelsea ætli sér að klófesta Kamerúnann snjalla og eru þeir sagðir tilbúnir til að láta William Gallas og Hernan Crespo sem hluta af kaupverðinu. ,,Samuel er ekki til sölu, jafnvel fyrir alla heimsins peninga," sagði Laporta. ,,Hann er leikmaður Barcelona og mun gefa klúbbnum mikla ánægju á næstu árum. Þar fyrir utan hafa Cules(stuðningsmenn Barcelona) tekið hann í dýrðlingatölu."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×