Sport

Beckham viðrar óánægju sína

Enski landsliðsfyrirliðinn hefur viðrað óánægju sína með að fara í gegnum annað tímabilið án bikars hjá Real Madrid. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United hefur ekki unnið til verðlauna síðan hann flutti sig til Spánar fyrir tveimur árum. Hinn þrítugi Beckham sagði í dag: ,,Ég er ekki vanur því að vinna ekki til verðlauna. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég spila tvö tímabil án þess að vinna eitthvað og eins og liðsfélagar mínir er ég mjög óánægður með það."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×