Sport

Jose Mari vill fá Abbiati

Spænski framherjinn hjá Villarreal, Jose Mari, hefur skorað á félagið að fá varamarkvörð AC Milan, Cristiano Abbiati, til liðs við félagið. Villarreal er á höttunum eftir nýjum markverði þar sem Jose Reina, núverandi markvörður þeirra, mun að öllum líkindum skrifa undir hjá Liverpool í sumar. Jose Mari veit allt um hæfileika Abbiati eftir að hafa spila með honum hjá Milan fyrir nokkrum árum og segir að félagið hafi spurt hann um markvörðinn. ,,Jose Manuel, yfirmaður íþróttamála hjá félaginu, spurði mun Abbiati," sagið Jose Mari. ,,Frá mínum bæjardyrum séð er þetta kaup af hæsta klassa. Abbiati er frábær markvörður en með tilkomu Dida hefur hann þurft að verma bekkinn. Hann er frábær persóna og það yrði mikið gæfuspor fyrir Villarreal að fá hann til liðs við sig."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×