Sport

Sir Alex stjórnar til 2008

Sir Alex Ferguson ætlar sér að vera knattspyrnustjóri Manchester Utd til ársins 2008. Þetta segir Ryan Giggs, leikmaður félagsins, sem skrifaði undir nýjan samning fyrir skömmu. Giggs upplýsir að Ferguson hefði sagt sér þetta í aðdraganda samningsgerðarinnar. Samningur Ferguson við Man. Utd. er til eins árs í senn frá og með þessu sumri en talið er að bandaríski auðkýfingurinn Malcolm Glazer, sem eignaðist 75 prósent í félaginu á dögunum, vilji koma sínum manni að í brúna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×