Sport

Ljungberg fór í alnæmispróf

Sænski landsliðsmaðurinn Fredrik Ljungberg hefur lengi fundið fyrir verkjum í mjöðminni. Í fyrstu hélt hann að gömul meiðsli hefðu tekið sig upp. Þá óttaðist hann í tvær vikur að hann hefði krabbamein og fór einnig í alnæmispróf. Við nánari rannsóknir kom í ljós að Ljungberg var með blýeitrun eftir að hafa fengið sér nokkur tattú á líkamann. Fyrir vikið þurfti hann að fara í sogæðaaðgerð sem heppnaðist vel og því verður Ljungberg með Arsenal á morgun í bikarúrslitaleiknum gegn Manchester United. sem sýndur verður beint á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×