Sport

Del Horno staðfestir áhuga Chelsea

Vinstri bakvörður Athletic Bilbao, Asier del Horno, hefur staðfest að Chelsea vilji fá hann og segir tilboðið vera of gott til að hafna. Þeir bláu hafa verið orðaðir við Del Horno, sem er metinn á um 12 milljónir punda, í þónokkurn tíma og eru sagðir tilbúnir til að borga honum 2 milljónir punda á ári. ,,Það er mjög erfitt fyrir bæði mig og Athletic að hafna svona tilboði. Með svona samning mynd ég ekki aðeins vera hólpinn fjárhagslega fyrir lífstíð, heldur þyrfti fjölskylda mín aldrei að hafa áhyggjur af peningum aftur. Einnig myndi þetta þurrka út allar skuldir Athletic."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×