Sport

Mutu aftur í landsliðið

Fyrrum framherji Chelsea, Rúmeninn Adrian Mutu, hefur verið kallaður í landsliðshópinn á ný fyrir leikina gegn Hollandi og Armeníu í undankeppni heimsmeistaramótsins í næsta mánuði. Mutu, sem nú er á samningi hjá Juventus, er sem stendur í leikbanni eftir að upp komst um notkun leikmannsins á kókaíni, en það bann endar nú á þriðjudaginn. Landsliðsþjálfari Rúmeníu, Victor Piturca, vonast til að Mutu muni leika síðasta leik Juventus á tímabilinu, gegn Cagliari 29. maí.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×