Sport

Liverpool til Japans í sumar

Liverpool tilkynnti í dag að félagið myndi ferðast til Asíu, nánar tiltekið til Japans, og spila þar tvo leiki í sumar. Liðið mun spila gegn Shimizu S Pulse 27. júlí og gegn Kashima Antlers þremur dögum síðar. Liverpool spilaði síðast í Japan árið 1984 er þeir töpuðu gegn Independiente í heimsmeistarakeppni félagsliða í Tokyo. Liðið leik einnig í Tokyo þremur árum áður, þá gegn Flamengo, og tapaðist sá leikur einnig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×