Sport

Markalaust hjá Man Utd og Arsenal

Staðan í hálfleik er 0-0 hjá Arsenal og Manchester United í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu en leikið er á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff. Man Utd hefur verið sterkari aðilinn í leiknum þar sem Wayne Rooney hefur hreinlega farið á kostum og  leikið vörn Arsenal grátt en hann hefur átt 5 markskot hálfleiknum. Þetta er í síðasta sinn sem úrslitaleikur keppninnar fer fram í Cardiff þar sem nýr Wembley leikvangur verður vígður með úrslitaleik keppninnar á næsta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×