Sport

Davies til Everton

Meistaradeildarnýliðar Everton hafa tryggt sér öflugan liðsauka fyrir næsta tímabil en félagið hefur gengið á kaupum á miðjumanninum Simon Davies frá Tottenham. Kaupverðið er talið vera um 4 mlljónir punda sem jafngildir um 480 milljónum íslenskra króna. Davies sem Tottenham keypti frá Peterborough í janúar 2000 er velskur landsliðsmaður og hefur skorað 24 mörk í 154 leikjum fyrir Spurs. Everton lenti í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili og tryggði sér rétt til að leika í forkeppni Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Það má því reikna með að fleiri sterkir leikmenn muni bætast í hóp liðsins á næstunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×